
Framvinda á starfsferli - stuðningur og hindranir er yfirskrift uppskeruhátíðar meistaranema í náms- og starfsgjöf sem haldin er á vegum námsbrautar í náms- og starfsráðgjöf við Félags- og mannvísindadeild HÍ og Félags náms- og starfsráðgjafa (FNS). Uppskeruhátíðin verður haldinn þriðjudaginn 14. september kl. 12:30 -15:30 í Námunni, sal Endurmenntunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7.
Á dagskrá eru erindi sem fjalla um ráðgjöf við fólk á náms- og starfsferlinum, allt frá leikskólaaldri til fullorðinsára. Nokkur erindi fjalla um ráðgjöf við fólk sem standa frammi fyrir miklum hindrunum, s.s. vegna atvinnumissis eða fangelsunar.
Dagskrá er sem hér segir:
Kl. 12:30 - Setning
- Björg Kristjánsdóttir, formaður Félags náms- og starfsráðgjafa
Kl. 12:45 – 14:00 - Menntun og fræðsla, lykill að jákvæðri starfsþróun
- Agnes Ósk Snorradóttir - Þegar ég verð stór, ætla ég að verða pollur. Hugmyndir leikskólabarna um framtíðarstarf
- Líney Björg Sigurðardóttir - Stuðningur og hvatning foreldra til framhaldsskólagöngu barna sinna: Skiptir búseta máli?
- Svanhildur Svavarsdóttir - Á hverju byggja 10. bekkingar val sitt á framhaldsskólanámi? Skólaheimsóknir og önnur upplýsingaöflun 10. bekkinga um framhaldsskóla og námsbrautir
- Sigurjóna Jónsdóttir - Árangursmat á náms- og starfsfræðslu í starfsmenntaskóla
- Lóa Hrönn Harðardóttir - Afburðaárangur í háskólanámi „...ég byrja ekki á einhverju nema ég ætli að klára það“
Kaffihlé
14:15 – 14:45 - Þegar á brattann er að sækja
- Margo Elisabet Renner - WE WANT TO CONTRIBUTE TOO: The narrative experience of immigrants with career qualifications and their acceptance into the Icelandic labor market
- María Guðmundsdóttir Gígja - "Þetta skiptir öllu máli". Náms- og starfsráðgjöf í afplánun
14:45 – 15:30 - Atvinnumissir og framtíðarsýn
- Ásta Gunnlaug Briem - Í meistaranám við atvinnumissi: "Þetta er eitthvað sem alltaf kemur að notum"
- Margrét Linda Ásgrímsdóttir - „Vinnan göfgar manninn“. Reynsla atvinnulausra karla 50 ára og eldri af atvinnumissi
- Gréta Matthíasdóttir - Líðan og lífshamingja í atvinnuleysi: „Svo var hamingjan bara þarna hinum megin við hornið.“
Fundarstjóri er Jónína Ólafsdóttir Kárdal, náms- og starfsráðgjafi við Náms-og starfsráðgjöf Háskóla Íslands (NSHÍ).
