Skip to main content

Umhverfismál á nýrri öld: Viðhorf Íslendinga

Umhverfismál á nýrri öld: Viðhorf Íslendinga - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. nóvember 2018 13:00 til 17:00
Hvar 

fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu.

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af aldarafmæli Vísindafélags Íslendinga stendur félagið fyrir málþingi um umhverfismál í samstarfi við Félagsfræðingafélag Íslands, Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands, Félagsvísindastofnun, Umhverfis- og auðlindafræði og Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Hornafirði, föstudaginn 16. nóvember 2018 milli klukkan 13 og 17 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu.

Loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa þegar haft veruleg áhrif lífsskilyrði á Íslandi og jörðinni allri og allar líkur eru á að þau áhrif muni einungis aukast. Ljóst er að við, bæði einstaklingar og samfélag, þurfum að breyta hegðun okkar, sérstaklega þegar kemur að nýtingu orku og annarra náttúruauðlinda áður en það verður of seint. En hver eru viðhorf Íslendinga til málaflokksins? Höfum við einhverjar áhyggjur og erum tilbúin til að taka ábyrgð og gera það sem þarf? Og hvernig eru viðhorf okkar í samanburði við viðhorf almennings í öðrum Evrópulöndum.

Dagskráin samanstendur af fjórum erindum en að þeim loknum verða pallborðsumræður og svo léttar veitingar í lokin.

Í erindunum fjórum verður gert grein fyrir og kynntar niðurstöður könnunarinnar „Lífsviðhorf Evrópubúa“ (e. European Social Survey) sem framkvæmd var af Félagsvísindastofnun haustið 2016.

Í fyrsta erindinu verður gerð grein fyrir könnuninni „Lífsviðhorf Evrópubúa“, sem er ein vandaðasta könnun á viðhorfum almennings sem gerð er í heiminum, en sérlega er gætt að aðferðafræðilegri og kenningarlegri samanburðarhæfni. Árið 2016 var sérstök áhersla lögð á loftslags-og orkumál og í næstu þremur erindum verða niðurstöður kynntar, bæði fyrir Ísland en einnig hvernig við stöndum í evrópskum samanburði. Að auki verður sjónum beint að því hvort það sé munur á milli hópa varðandi viðhorf til umhverfismála á Íslandi.

Í pallborðsumræðunum verður svo rætt um helstu áskoranir og þær aðgerðir sem grípa þarf til á Íslandi, út frá mismunandi sjónarhornum.

 

Dagskrá

13:00-14:20 Setning málþings og erindi

  • Lífsviðhorf Evrópubúa (e. European Social Survey)
    Fyrirlesari: Árni Bragi Hjaltason, verkefnastjóri við Félagsvísindastofnun
    Árni Bragi mun gera grein fyrir könnuninni „Lífsviðhorf Evrópubúa“ (e. European Social Survey) sem framkvæmd var af Félagsvísindastofnun haustið 2016.
  • Hvað hafa Íslendingar um loftslagsbreytingar að segja?
    Fyrirlesari: Helga Ögmundardóttir, lektor í mannfræði við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
    Í erindi sínu fjallar Helga um hvað Íslendingar hafa um loftslagsbreytingar að segja og setur í samhengi við viðhorf annarra í Evrópu.
  • Viðhorf Íslendinga til orkumála: Erum við jafnfrábær og allir halda?
    Fyrirlesari: Ingunn Gunnarsdóttir, doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði
    Ingunn rýnir í viðhorf Íslendinga til orkumála í evrópsku samhengi og veltir fyrir sér hvort við, Íslendingar, séum jafnfrábærir og allir halda varðandi orkumál. 
  • Hver ber ábyrgð?
    Fyrirlesari: Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
    Í erindi sínu fjallar Sigrún um hvernig almenningur lítur á sína eigin ábyrgð og ábyrgð stjórnvalda þegar kemur að aðgerðum í umhverfismálum. Að auki kemur hún inn á hvers konar aðgerðir það eru sem almenningur styður, t.d. hækkun á sköttum eða lagabreytingar.

 

14:20-14:40 Kaffihlé

14:40-16:00 Pallborðsumræður

Þorvarður Árnason umhverfisheimspekingur, náttúrufræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ í Hornafirði stýrir pallborðsumræðum,  um helstu áskoranir og þær aðgerðir sem grípa þarf til á Íslandi.

Þátttakendur í pallborði eru:

  • Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar
  • Breki Karlsson formaður Neytendasamtaka Íslands
  • Brynhildur Davíðsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands og varaformaður Loftslagsráðs
  • Halldór Björnsson Hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands og formaður vísindanefndar um loftslagsbreytingar

16:00-17:00 Léttar veitingar

Fundarstjóri: Sunna Símonardóttir nýdoktor í félagsfræði og verkefnastjóri Vísindafélags Íslendinga.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar að málþingi loknu.

 

Málþingið er hluti af röð málþinga um vísindi og samfélagslegar áskoranir sem Vísindafélags Íslendinga stendur fyrir í tilefni af aldarafmæli félagsins. Hlutdeild vísindanna í íslenskri menningu frá fullveldi er m.a. skoðuð á málþingunum en félagið var stofnað sama dag og Ísland varð fullvalda ríki með það í huga að öflug vísindastarfsemi væri þjóðinni nauðsynleg til að dafna. Ekki síður er þó hugmyndin að stuðla að almennri umræðu um samhengi vísindanna við samfélagslegar áskoranir með framtíðina í huga.

Umhverfismál á nýrri öld: Viðhorf Íslendinga til loftslags- og orkumála í evrópsku samhengi

Umhverfismál á nýrri öld: Viðhorf Íslendinga