
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og English Speaking Union boða til fundar með Dr. Lassi Heininen, aðjúnkt við Félagsvísindadeild Háskólans í Lapplandi. Sem gestakennari við Háskóla Íslands hefur hann verið reglulegur gestur hér á landi auk þess sem hann gegnir stöðu aðjúnkts hjá Frost Center for Canadian Studies í Trent háskóla í Kanada og Landafræðideild Háskólans í Oulu í Finnlandi. Lassi er auk þess stjórnarformaður í International Steering Committee for the Northern Research Forum. Rannsóknarsvið hans spannar víðtæk málefni í alþjóðastjórnmálum, öryggi, samspili stjórnmála og landafræði auk evrópskra-, rússneskra- og norrænna fræða.
Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn. Sjá http://www.hi.is/ams
Allar nánari upplýsingar veitir Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar, í síma 525-5262/693-9064.
Einnig má hafa samband við stofnunina á netfangið ams@hi.is
