
Í tilefni af Evrópska tungumáladeginum efna Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og STÍL, Samtök tungumálakennara á Íslandi, til málþings þriðjudaginn 28. september og hefst það klukkan 15.30. Efni málþingsins er tungumálakennsla í grunn- og framhaldsskólum í ljósi nýrra laga um framhaldsskóla. Flutt verða flutt nokkur stutt framsöguerindi og að þeim loknum fara fram pallborðsumræður.
Dagskrá:
15.30: Vigdís Finnbogadóttir ávarpar þingið
15.35: Thor Vilhjálmsson rithöfundur afhendir menntamálaráðherra bókina Tungumál ljúka upp heimum. Orð handa Vigdísi og les texta sinn "Tungur manna"
15.45: Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnir stefnu ráðuneytisins viðvíkjandi tungumálakennslu.
16.00: Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur les texta sinn "Klink í vasa" úr bókinni Tungumál ljúka upp heimum.
16.05: Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, fjallar um skilyrði tungumálakennslu í grunn- og framhaldsskólum, m.a. námsskilyrði nemenda, menntun kennara, viðhorf til tungumálanáms og áhrif samdráttar og niðurskurðar á nám og kennslu í tungumálum.
16.20: Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, ræðir um menningarlegt gildi tungumálanáms og mikilvægi tungumálakunnáttu í tengslum við framhaldsnám.
16.35: Pallborðsumræður
17.00: Kaffiveitingar
Fundarsalur
Endurmenntunar Háskóla Íslands
28. september kl. 15:30-17:00
