Töfraraunsæið í Rómönsku Ameríku: Klassík eða klisja? - Málþing um bókmenntir frá Rómönsku Ameríku

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. mars 2012 - 13:00

Málþing um bókmenntir frá Rómönsku Ameríku verður haldið í sal Þjóðminjasafnsins, föstudaginn 2. mars og hefst það kl. 13:00.

Bókmenntaverk frá Rómönsku Ameríku vöktu mikla athygli um skeið hér á landi, einkum á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Bókmenntir þaðan höfðu geysileg áhrif víða um heim, að Íslandi meðtöldu. Þessi miklu áhrif urðu til þess að menn gerðu sér einfaldari og einhæfari hugmynd um bókmenntir þessa heimshluta en raun ber vitni. Þannig hafa til dæmis mörg bókmenntaverk verið flokkuð undir töfraraunsæi sem eiga ekkert skylt við það. Þetta þing er haldið til að vekja máls á fjölbreytni bókmennta frá löndum Rómönsku Ameríku og hvetja til umræðna um þær.

Málþingið er haldið á vegum spænskunnar við Háskóla Íslands og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.

Umsjónarmaður þess er Kristín Guðrún Jónsdóttir.

 

Dagskrá:

  • Kristín Guðrún Jónsdóttir, aðjunkt H.Í.: „Frá Macondo til McOndo. Sögulegt yfirlit“
  • Sigrún Á . Eiríksdóttir, þýðandi: „Skáldskapur og raunveruleiki í verkum Vargas Llosa“
  • Einar Már Guðmundsson, rithöfundur: „Vesalings veruleikinn!“
  • Hlé
  • Hólmfríður Garðarsdótti, prófessor H.Í.: „Löskuð ímynd karlhetjunnar og óbeislað hugarflug gaf konum byr í seglin“
  • Eiríkur Guðmudsson, útvarpsmaður og rithöfundur: „Roberto Bolaño og kapphlaupið við dauðann“
  • Hermann Stefánsson, rithöfundur og þýðandi: „Castellanos Moya: Skáldsagan Fásinna og sóknin gegn töfraraunsæinu“

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Nánari dagskrá 

Allir eru velkomnir.


Myndin er eftir Ricardo Toribio.


deila á facebook