
Þýsk - íslenska viðskiptaráðið (ÞÍV) og Grand hótel Reykjavík í samvinnu við Þýsk-íslenska tengslanetið, Germaníu, Cuxhavenfélagið, þýskan við HÍ og þýska sendiráðið, standa fyrir Þýskum dögum í Reykjavík, dagana 30. sept. - 3. okt. Markmið Þýsku daganna er að vekja athygli á þýskum vörum, mat og menningu.
Boðið verður upp á þjóðlegan þýskan mat og à la carte matseðil á veitingastaðnum Brasserie Grand alla dagana og auk þess verður sérstök dagskrá. Til landsins kemur matreiðslumeistarinn Volker Bassen, en hann er meðlimur í landsliði matreiðslumeistara, Let´s go Magic Germany.
Í boði eru m.a. kvikmyndasýningar fyrir börn og fullorðna í sölum Grand hótels, hægt verður að fá þýskukennslu á 10 mínútum og verða þá altalandi á 20 mínútum. Sérstök kynning verður einnig á vörum frá Þýskalandi sem Þýsk-íslenska viðskiptaráðið stendur fyrir.
Alla dagana gefst gestum kostur á því að smakka á þýskum mat sem gestakokkurinn Bassen og matreiðslumeistarar Grand hótels framreiða.
Þann 2. október verður þýskur kvöldverður eins og hann gerist bestur að hætti Volker Bassen, og hefst hann kl. 19.30. Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Hermann-Josef Sausen, sem tók nýlega við störfum og verður viðstaddur kvöldverðinn. Í boði er sérstakur fjögurra rétta kvöldverður á krónur 6.900. Það verður happadrætti, skemmtiatriði og margt fleira verður á boðstólum.
Bókanir á þýska kvöldverðinn 2. október á netfangið veitingar@grand.is eða í síma 514 8000
Þýskar bíómyndir
Deutsche Filme auf den Deutschen Tagen:
Föstudagur
14:00 Good Bye, Lenin!
16:00 Das Leben der anderen
Laugardagur
13:00 Im Juli
15:00 Emmas Glück
Sunnudagur
13:00 Kirschblüten-Hanami
15:00 Vier Minuten
Barna og unglingamyndir
Föstudagur
14:00 Flussfahrt mit Huhn
16:00 Das fliegende Klassenzimmer
Laugardagur
13:00 Das kleine Gespenst
15:00 Hände weg von Mississippi
Sunnudagur
13:00 Pünktchen und Anton
15:00 Wer früher stirbt ist länger
Séstök dagskrá fyrir smáfólkið frá föstudegi til sunnudags
Einstakar hreyfimyndir eftir þýsku kvikmyndagerðakonuna Lotte Reiniger (1899-1981).
Allar myndir verða sýndar á þýsku og eru með enskum eða þýskum texta
Þýska á 10 mínútum- verður þú altalandi á 20 mínútum?
Tímarnir verða á eftirfarandi tímum
Föstudag : 14:30, 15:15, 16:00, 16:45, 17:30
Laugardag : 11:30, 12:15, 13:00, 13:45, 14:30, 15:15, 16:00
