Þurfa háskólarnir að endurskoða hlutverk sitt og starfshætti?

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. september 2010 - 14:00 to 17:00

 

Rannsóknastofa um háskóla boðar til kynningarfundar og málstofu  fimmtudaginn 2. september kl. 14.00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Stofan hefur verið sett á laggirnar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Í stjórn hennar sitja Anna Ólafsdóttir, lektor, Guðrún Geirsdóttir, dósent, Gyða Jóhannsdóttir, dósent, Páll Skúlason, prófessor, og Jón Torfi Jónasson, prófessor og forseti Menntavísindasviðs. 

Markmið rannsóknarstofunnar eru að stuðla að rannsóknum á háskólum og starfsemi þeirra, halda til haga niðurstöðum íslenskra rannsókna á háskólum þannig að þær séu á hverjum tíma aðgengilegar, stuðla að aukinni fræðslu um háskóla á meðal fræðimanna, stjórnvalda og almennings og efla skilning á gæðum og gildum háskólastarfs. Stjórn stofunnar óskar eftir samstarfi við allt áhugafólk í íslensku fræðasamfélagi um að vinna að þessum markmiðum. 

 

Dagskrá málstofu

Fundarstjóri: Guðrún Geirsdóttir

Kl. 14.00 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, flytur ávarp og opnar vefsíðu stofunnar

Kynning á vefsíðu stofunnar, rannsóknarverkefnum og fjárhagsstyrk sem mennta- og menningarmálaráðherra hefur veitt henni: Anna Ólafsdóttir og Jón Torfi Jónasson 

Kl. 14.30 Quality and Quality Assurance in Higher Education: the European Debate: Germain Dondelinger, yfirmaður háskólamála í ráðuneyti menningar, æðri menntunar og rannsókna í Lúxemborg

Kaffihlé 

Kl. 16.00 Páll Skúlason varpar fram spurningum um hlutverk og starfshætti háskóla

Pallborðsumræður um málefni háskóla

Þátttakendur í pallborði verða: Allyson Macdonald, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Hellen Gunnarsdóttir og Rúnar Vilhjálmsson

Stjórnandi pallborðs: Gyða Jóhannsdóttir

Áætluð dagskrárlok kl. 17.00 

deila á facebook