Þjónusta Barnahúss:

Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. febrúar 2012 - 15:10 to 16:10

Anna Kristín Newton sálfræðingur kynnir helstu niðurstöður skýrslunnar. 

Frá upphafi og fram til árslok 2009 hafa rúmlega þrjú þúsund börn farið í skýrslutöku og/eða meðferð í Barnahús.  Starfsfólk Barnahús hefur verið umhugað að veita faglega og markvissa þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Barnaverndarstofa fól Rannsóknastofnun í barna og fjölskylduvernd það verkefni að leggja mat á upplifun notenda á Barnahúsi og voru tveir sjálfstætt starfandi sálfræðingar, Anna Kristín Newton og Elín Hjaltadóttir, fegnar til að vinna rannsóknina.

Niðurstöður rannsóknar gefa til kynna að heildarupplifun barna og forráðamanna á  skýrslutökum í Barnahúsi er jákvæðari en þeirra barna sem fara í skýrslutöku fyrir dómsstóla. Umhverfi, viðmót starfsfólks og þjónustan sem veitt er í Barnahúsi var metin jákvæð sem og að allir svarendur voru sammála um að það skiptir máli að börn og ungmenni sem grunurl leikir á að hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi hafi aðgang að þjónustu á borð við Barnahús

Bragi Guðbrandsson forstjóri barnaverndarstofu, verður með stutt inngangserindi

 

 

deila á facebook