Þar sem gerast sögur og ævintýr

Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. febrúar 2010 - 8:30 to 14:25

Á ráðstefnunni verður fjallað um hvernig nota má safna- og kvæðaarfinn í skólastarfi, svo og skuggaleikhús, brúðuleikhús og tónlist. Meðal fyrirlesarar eru Baldur Hafstað prófessor við Menntavísindasvið, Berndt Ogrodnik brúðugerðarmaður og Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur. Þá verður sagt frá skemmtilegum verkefnum í leikskólanum Dvergasteini og efnisskrá tvíeykisins Dúó Stemmu fyrir leikskólabörn.

DAGSKRÁ
8:30 – 9:00 Skráning og afhending gagna

9:00 – 9:10 Setning
Hildur Skarphéðinsdóttir skrifstofustjóri á Leikskólasviði.

9:10 – 9:40 Íslensk þjóðlög
Dúó Stemma, Herdís A. Jónsdóttir og Steef v. Oosterhout.

9:45-10:30 Það má alveg fá hroll
Örfá minnisatriði um ævintýri og þjóðsögur í skólastarfi.
Baldur Hafstað prófessor.

10:35 – 10:50 Kaffihlé

10:50 – 11:20 Skuggaleikhús
Sigríður Helga Hauksdóttir og börn úr Myndlistarskóla Reykjavíkur.

11:20 – 11:50 Ótrúleg eru ævintýrin
Elín Mjöll Jónasdóttir og Halldóra Guðmundsdóttir frá leikskólanum
Dvergasteini.

11:50 – 12:50 Hádegisverður

12:55 – 13:10 Að segja börnum sögu
Berglind Ósk Agnarsdóttir og hópur leikskólabarna.

13:10 – 13:55 Gamalt verður nýtt. Sagna–og kvæðaarfur fyrir börn
Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur.

13:55 – 14:25 Brúðuleikhús
Bernd Ogrodnik

14:25 Ráðstefnuslit

Skráning á www.leikskolar.is / www.yourhost.is

deila á facebook