Surplus: Terrorized into being consumer

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. mars 2010 - 19:30 to 21:30

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Þriðjudaginn 2.mars er það myndin Surplus: terrorized into being consumer

Surplus skoðar hið eyðileggjandi og skaðlega eðli neyslumenningar. Endurskoðuð eru þau rök sem mæla með kapítalisma og tækniframförum líkt og aukin framleiðni, frítími og aukning lífsgæða. Tæknin hefur ekki fært okkur nær hvert öðru heldur slitið okkur frá lífinu sjálfu. Velt er upp spurningum um það ofbeldi sem innbyggt er í menningu okkar gegnum neyslu og framfarir.

deila á facebook