
Darwin kenndi okkur að skilja náttúrlegt val. Tæknivæddur, er maðurinn mikilvirkur afræningi og afrán hans getur virkað sem máttugur valkraftur. Það gildir um nútíma fiskveiðar. Pan I genið í þorski hefur tvö allel og arfgerðir gensins tengjast svipgerðum sem velja sér búsvæði eftir dýpi. Sterkt val vegna fiskveiða, sem beinast í ríku mæli að fiski á ákveðnu búsvæði, finnst á geninu. Valið er óbeint og verður vegna þess að fiskur velur sér búsvæði eftir arfgerð og fiskveiðar eru mestar í ákveðnu búsvæði. Mat á hæfnistölum er gerð. Hæfnismat er notað til að spá fyrir um breytingar á samsetningu stofnsins.
Spáin er að arfgerðir fisks sem eru lagaðar að grunnsævi hverfi fljótt úr stofninum ef fram heldur sem horfir. Afleiðingin kann að verða hrun fiskveiða úr stofninum.
Einar Árnason er prófessor í þróunarfræði og stofnerfðafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur rannsakað atferli kjóans, breytileika í brekkubobbum, náttúrulegt val í ávaxtaflugum, en mesta áherslu hefur hann lagt á rannsóknir á fjölbreytileika og erfðasamsetningu nytjastofna við Ísland og í Atlantshafi.
Erindið er hluti af fyrirlestraröð í tilefni 200 ára afmælis Charles Darwin sem fram fer haustið 2009.
Dagskrá má nálgast á darwin.hi.is.
Erindið er öllum opið og verður flutt á íslensku.
Strong selection on the Pan I locus in Atlantic cod due to fishing: a predicted collapse of fishery Einar Árnason, Professor of Evolutionary Biology will talk about fishery induced selection in cod, which has relevance to fisheries management, population genetics and evolutionary biology. This presentation is part of a seminar series honoring Charles Darwin, as 200 years have passed since his birth. The seminar series extends into December 2009, full schedule can be viewed on darwin.hi.is.
The seminar is free, open to all and will be given in Icelandic.
Styrktaraðillar: Menntamálaráðaneytið, Háskóli Íslands, Náttúrufræðistofa vestfjarða, Vísindafélag Íslands, Líffræðifélag Íslands, Gróco, Hólaskóli, Landbúnaðarskóli Íslands.
