Stefnumót um jökla í Himalaya og hnatthlýnun

Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. mars 2010 - 12:00 to 13:30

Umhverfisráðuneytið og Stofnun Sæmundar fróða bjóða til Stefnumóts um Jökla í Himalaya og hnatthlýnun.

Þorsteinn Þorsteinsson jöklafræðingur hjá Veðurstofu Íslands flytur erindi sem hann nefnir Jöklar í Himalaya og loftslagsskýrsla Sameinuðu þjóðanna. Í fyrirlestrinum verður fjallað um útbreiðslu jökla í Himalayafjöllum og gerð grein fyrir stöðu þekkingar á afkomu þeirra. Greint verður frá margumtalaðri umfjöllun IPCC skýrslunnar varðandi spár um bráðnun jöklanna á komandi áratugum. Þá verður sagt frá nýlegum könnunarleiðangri að Kolahoi jöklinum í Kashmirhéraði Indlands.

Stefnumótin eru opnir fundir um umhverfismál sem efst eru á baugi á hverjum tíma. Allir eru velkomnir.

deila á facebook