Starfsánægja og aðstæður starfsfólks í umönnun aldraðra - norræn samanburðarrannsókn

Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. febrúar 2012 - 12:10 to 13:00

Elísabet Karlsdóttir, félagsráðgjafi MA og framkvæmdastjóri RBF

Í fyrirlestrinum mun Elísabet fjalla um niðurstöður norrænnar samanburðarrannsóknar (NORDCARE)  og niðurstöður varðandi starfsánægju og aðstæður starfsfólks í umönnun aldraðra.

Niðurstöður rannsóknarinnar ásamt ítarlegri umfjöllun má finna í nýútkominni ritröð  RBF, Félagsráðgjafardeildar og Ís-Forsa.   

Ritröð V

Verkefni, vinnuumhverfi og líðan starfsfólks í umönnun aldraðra á Íslandi. Norræn samanburðarrannsókn.

deila á facebook