
Ert þú ekki til í að fá þér bjór, kynnast betur samnemendum þínum í Háskóla Íslands og vera með þeim fyrstu til þess að spila heitasta borðspilið í ár, Heilaspuna, áður en prófin byrja?
Þetta er ekkert grín því núna á fimmtudaginn, 26. nóvember verður spilakvöld háskólanema haldið á Háskólatorgi kl. 19:30 til 22:30. Hámubjór og vín verða á tilboðsverði og eintak af Heilaspuna á hverju borði en í spilinu fær lygalaupurinn uppreisn æru því takmark spilsins er að fá aðra leikmenn til þess að trúa uppspuna þínum!
Útsendarar Heilaspuna verða á staðnum til þess að útskýra leikreglur fyrir spilaþyrstum háskólanemum.
Frekari upplýsingar um Heilaspuna á heimasíðu spilsins www.heilaspuni.is og á www.facebook.com/heilaspuni
Við hlökkum til að sjá þig!
