Skiptinámskynning fyrir Menntavísindasvið

Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. nóvember 2009 - 12:15 to 13:00

Alþjóðaskrifstofa stendur fyrir ýmsum kynningum á skiptinámi í allan vetur. Meðal annars er um að ræða kynningarfundi sem eru sniðnir að þörfum hvers sviðs fyrir sig. Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 12:15 fer fram kynning á skiptinámi fyrir stúdenta á Menntavísindasviði, þar sem fjallað verður um þá möguleika í skiptinámi sem eru fyrir hendi, bæði innan Evrópu og víðar. Farið verður í umsóknarferlið og fyrrverandi skiptinemi greinir frá reynslu sinni.

Kynningarfundurinn fer fram í stofu H 101 í Stakkahlíð og við vonumst til að sjá sem flesta.

Hér má finna upplýsingar um aðrar kynningar sem Alþjóðaskrifstofa heldur í vetur: http://www.hi.is/node/12061

deila á facebook