Skiptinámskynning fyrir Félagsvísindasvið

Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. nóvember 2009 - 12:15 to 13:00

Alþjóðaskrifstofa stendur fyrir ýmsum kynningum á skiptinámi í allan vetur. Meðal annars er um að ræða kynningarfundi sem eru sniðnir að þörfum hvers fræðasviðs fyrir sig. Miðvikudaginn 18. nóvember fer fram kynning á skiptinámi fyrir stúdenta á Félagsvísindasviði, þar sem fjallað verður um þá möguleika í skiptinámi sem eru fyrir hendi, bæði innan Evrópu og víðar. Farið verður í umsóknarferlið og hvað hafa ber í huga þegar sótt er um skiptinám.

Við vonumst til að sjá sem flesta.

Hér má finna upplýsingar um aðrar kynningar sem Alþjóðaskrifstofa heldur í vetur: http://www.hi.is/node/12061

deila á facebook