Hvenær hefst þessi viðburður:
20. febrúar 2010 - 13:00 to 14:30

Í tilefni af tíu ára afmæli Vísindavefsins verður almenningi boðið á fjóra fyrirlestra um vísindi, fjóra laugardaga í röð.
Fyrirlestrarnir verða í sal 132 í Öskju og hefjast kl. 13:00.
Fjórði og síðasti fyrirlesturinn verður haldinn laugardaginn 20. febrúar. Þá mun Jón Ólafsson, prófessor í haffræði við HÍ, flytja erindið Sjór, súrnun og straumar. Erindið er hluti af fyrirlestraröðinni Vísindaeyjan: Landnám, loftslag og haf.
Nánari upplýsingar eru hér: http://visindavefur.hi.is/article.php?id=89.
Einnig er hægt að fræðast um erindið á þessari Fasbókarsíðu
