Simon Noriega-Olmos: The Ontology of Cratylus 439D3-440C1

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. mars 2012 - 12:00

Föstudaginn 2. mars, kl. 12:00, heldur Simon Noriega-Olmos fyrirlestur um verufræði lokarakanna í Kratýlosi eftir Platon. Í samræðunni fjallar Platon um eðli tungumálsins, meðal annars kenninguna um réttnefni. Í fyrirlestri sínum mun Noriega-Olmos reyna að útskýra hver lokarök samræðunnar eru, hvernig þau tengjast efni samræðunnar í heild og hvaða verufræðilegu afleiðingar kenningin um réttnefni hefur.

Simon Noriega-Olmos er Ph.D. í fornaldarheimspeki frá Princeton-háskóla (2008) og nýdoktor við Háskólann í Sao Paolo.

Stund: 2. mars, kl. 12:00 – 13:15

Staður: stofa A225 í Aðalbyggingu Háskólans.

Allir velkomnir!

 

deila á facebook