Samkeppnishæfni Íslands - Kynningar á klösum og stöðu þeirra

Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. febrúar 2010 - 16:00 to 18:00

Það er þekkt að virkir klasar ýta undir samkeppnishæfni atvinnugreina og þjóða. Þess vegna þarf að horfa til klasa þegar hugað er að samkeppnishæfni Íslands. Klasasamstarf getur veitt aðgang að þekkingu og tækni, ýtt undir nýsköpun hjá fyrirtækjum og stuðlað að betri árangri innan atvinnugreina án þess að skerða þá samkeppni sem nauðsynleg er.

Þann 3. febrúar n.k., í stofu HT 105, kl. 16.00 ætla nemendur í meistaranámi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands að halda kynningu á klasaverkefnum sem unnin voru á haustmisseri 2009 í námskeiðinu Samkeppnishæfni. Námskeiðið er í boði árlega í samstarfi við stofnun Michaels E. Porters við Harvard háskóla. Kennarar námskeiðins eru Dr. Runólfur Smári Steinþórsson prófessor og Friðrik Eysteinsson aðjúnkt.

Markmiðið er að kynna tiltekna klasa og draga fram hvaða ljósi klasagreiningin varpar á helstu áskoranir og tækifæri í þeim atvinnugreinum sem um ræðir.

Dagsskrá:
16:00-16:10 Klasar og samkeppnishæfni
16:10-16:30 Orkuklasinn
16:30-16:50 Hugbúnaðarklasinn

Kaffihlé

17:00-17:20 Sjávarútvegsklasinn
17:20-17:40 Hestaklasinn
17:40-18:00 Fatahönnunarklasinn


Fundarstjóri: Dr. Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor

Kynningarnar eru haldnar á vegum Rannsóknarmiðstöðvar stefnu og samkeppnishæfni í Háskóla Íslands í samstarfi við 20/20 Sóknaráætlun.

deila á facebook