Sameiginleg doktorsgráða í lögfræði

Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. febrúar 2012 - 11:00

 

Lagadeild Háskóla Íslands og Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla undirrita samning um sameiginlega doktorsgráðu í lögfræði. 

 

Föstudaginn 3. febrúar nk, kl. 11.00, í Hátíðasal Háskóla Íslands munu lagadeildir Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla undirrita samning sem kveður á um að deildirnar setji á laggirnar nám til sameiginlegrar doktorsgráðu í lögfræði. Samningurinn gerir ráð fyrir því að deildirnar standi saman að þriggja ára doktorsnámi á ensku fyrir framúrskarandi lögfræðinga sem hafa áhuga á akademískum störfum. Um er að ræða tímamót í lagakennslu á Íslandi og er viðurkenning á þeim góða árangri sem náðst hefur í starfi Lagadeildar Háskóla Íslands á undanförnum árum og áratugum. Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla er ein fremsta lagadeild á Norðurlöndum og skapar samningurinn mikilvæg tækifæri til náins samstarfs lagadeildanna á næstu misserum.

Allir velkomnir.

deila á facebook