Saga, samfélag, siðfræði - félagsráðgjöf í hálfa öld

Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. október 2011 - 16:00 to 17:30

Í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands og 30 ára kennsluafmæli félagsráðgjafar á Íslandi munu starfandi félagsráðgjafar segja frá sinni upplifun og þeim veruleika sem blasti við þeim þegar þau útskrifuðust sem félagsráðgjafar.

Fundarstjóri er Halldór S. Guðmundsson, lektor í félagsráðgjöf.

16.00 Ávarp deildarforseta, Dr. Steinunn Hrafnsdóttir

16.00 - 16.20 Guðrún Sigríður Jónsdóttir, félagsráðgjafi.
Guðrún lauk prófi í félagsráðgjöf frá Social institutet í Gautaborg árið 1957. Hún hefur viðamikla starfsreynslu á starfsvettvangi félagsráðgjafar og starfaði m.a. sem kennslustjóri í félagsráðgjöf við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands 1981-1992. Guðrún hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 2007 fyrir frumherjastörf í félagsráðgjöf og framlag til réttindabaráttu.

16.20 - 16.40. Gunnar Sandholt, félagsráðgjafi.
Gunnar lauk prófi í félagsráðgjöf frá Norges kommunal- og sosialhøgskole í Osló árið 1975. Gunnar hefur fjölbreytta starfsreynslu sem félagsráðgjafi og hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri Fjölskyldu- og þjónustusviðs hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.

16.40-17.00 Inga Vildís Bjarnadóttir,  félagsráðgjafi.
Inga Vildís lauk prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands í júní 2011 og hefur því nýhafið sína vegferð sem félagsráðgjafi á Íslandi.

17.00-17.30 Pallborðsumræður; Guðrún, Gunnar og Inga Vildís

Að loknum pallborðsumræðum býður félagsráðgjafardeild til móttöku í tilefni af 30 ára kennsluafmæli í félagsráðgjöf.

Hér er viðtal við Steinunni Hrafnsdóttur, deildarforseta, á afmælisvef skólans.


deila á facebook