
English below
Hugboð um himingeiminn; Космос как предчувствие
Verðlaunamynd frá árinu 2005
Árið er 1957. Konjok (Jevgení Mironov) er kokkur í sovéskri hafnarborg. Hann er hrifinn af einni þjónustustúlkunni, æfir box og ferðast um á reiðhjóli – en trúir statt og stöðugt á að hann eigi sér bjarta og merka framtíð. Í boxklúbbnum kynnist Konjok dularfullum manni sem ber nafnið Hermann. Í gegnum Hermann lærir Konjok um aðra veröld og ferðalög út í himingeiminn. Konjok verður fyrir miklum áhrifum af Hermanni og frásögnum hans. Hann sest upp í lest til Moskvu til að freista gæfunnar og þegar hann vaknar upp af svefni um miðja nótt situr gengt honum brosmildur, feiminn ungur maður – framtíðarhetja Sovétríkjanna – Júrí Gagarín.
Leikstjóri: Aleksej Útsjítel
Aðalhlutverk: Jevgení Mironov
Myndin er á rússnesku MEÐ ENSKUM TEXTA
Lengd: 90 mínútur
Tími: Fimmtudagur 30. september, kl.:16:00
Staður: Oddi, stofa 201
Allir velkomnir
Enginn aðgangseyrir
Rússneskan við HÍ og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Dreaming of Space; Космос как предчувствие (2005)
Konek works as a cook at a local restaurant in a northern seaport in the Soviet Union where his girlfriend, Lara, and her sister Rima are waitresses. But he falls under the influence of a mysterious figure from out of town who works as a fitter and whom Konek first encounters as a chance sparring partner at the local amateur boxing club. German, is more skilled as a boxer and more up on the world generally – a total foil to Konek whom he readily exploits. From his new friend Konek’s learns about a different world and flying into space – and finally he decides to get on a train to Moscow – in a pursuit for a new and meaningful life. On the train he wakes up during the night, and opposite him sits the future hero of the Soviet Union – Yury Gagarin.
Director: Aleksei Uchitel
Leading role: Yevgeny Mironov
Time: Thursday, September the 30th, at 16:00 hours
Place: Oddi, room 201
The film is in Russian with English subtitles and is 90 min. long.
Everyone is welcome to the movie.
The Russian programme at the UI and The Vigdís Finnbogadóttir Institute of Foreign Languages
