Runólfur Smári Steinþórsson: Stefnumiðuð þjónustustjórnun

Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Föstudaginn 27. nóvember mun Runólfur Smári Steinþórsson halda málstofu undir heitinu: Stefnumiðuð þjónustustjórnun

Í erindinu verður farið yfir mikilvægi þess að þjónustufyrirtækjum sé stjórnað stefnumiðað út frá skilningi á því sem einkennir þjónustu og þjónustufyrirtæki. Fyrst verður fjallað um þjónustu og hvernig megi flokka þjónustufyrirtæki. Síðan er lýst skilgreiningu á þjónustustjórnun og farið yfir þá þætti sem þjónustustjórnunin tekur til. Að endingu verður umfjöllunin dregin saman með áherslu á stefnumiðaða þjónustustjórnun.

Dr. Runólfur Smári Steinþórsson er prófessor og varadeildarforseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Hann er jafnframt forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar um stefnu og samkeppnishæfni.

deila á facebook