Réttlát fjölkynngi í Egils sögu Skalla-Grímssonar

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. nóvember 2009 - 16:00 to 17:00

Réttlát fjölkynngi í Egils sögu Skalla-Grímssonar -
Den rettferdige trolldommen i Egils saga Skalla-Grímssonar


Bernt Øyvind Thorvaldsen flytur erindi um eina mikilvægustu heimild sem til er um níð í Íslendingasögum: frásögn Egils sögu (k. 56-57) af níðstönginni sem Egill reisti Eiríki konungi blóðöx og Gunnhildi drottningu. Í illdeilum íslenska skáldbóndans og norsku konungshjónanna gegnir fjölkynngi lykilhlutverki og hvorki Gunnhildur né Egill skirrast við að beita galdrabrögðum. Bæði í lausu máli og bundnu réttlætir Egill formælingarnar gegn Gunnhildi og Eiríki með því að þau hjón hafi brotið gegn lögum guða og manna. Að dómi Thorvaldsens dregur sagan taum Egils og gerir lítið úr konungshjónunum enda verður níðið að áhrínsorðum þegar Hákon Aðalsteinsfóstri flæmir Eirík burt úr Noregi. Thorvaldsen skoðar sérstaklega afstöðuna til fjölkynngi og heiðins siðar sem kemur fram í Egils sögu og veltir upp þeirri spurningu hvernig skilja megi réttlætingu á fjölkynngi ef horft er til þess að á samtíð höfundarins voru galdrar og níð talin meiriháttar lögbrot og birtingarmynd trúarlegra ranghugmynda og djöfullegra vélabragða.

Bernt Øyvind Thorvaldsen er dósent í norrænum bókmenntum við háskólann í Volda á Sunnmæri. Hann vinnur að bók um níð og galdur sem minni í norrænum fornbókmenntum  og tekur einnig þátt í rannsóknarverkefninu Samspil bragkerfis, hljóðkerfis og setningagerðar sem unnið er að við Háskóla Íslands í samstarfi við fræðimenn í Noregi og nýtur styrks frá Rannís.

Erindið er haldið á vegum Hugvísindastofnunar, Málvísindastofnunar og verkefnisins Samspil bragkerfis, hljóðkerfis og setningagerðar.

Erindið er öllum opið og verður flutt á norsku.

Norsk:
Bernt Øyvind Thorvaldsen undersøker Egils trolldomsnid og holdningene til trolldommen og hedendommen i Egils saga Skalla-Grímssonar. Hvordan kan sagaens fremstilling av Egils “rettferdige trolldom” forstås på bakgrunn av forfatterens samtid, der trolldom og nid ble oppfattet som grove lovbrudd, og som uttrykk for religiøs villfarelse og demonisk manipulasjon?

deila á facebook