Ráðstefna til heiðurs Þráni Eggertssyni

Hvenær hefst þessi viðburður: 
21. apríl 2012 - 14:00 to 18:00

Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu til heiðurs Þráni Eggertssyni professor emeritus, undir yfirskriftinni Economic Behavior and Institutions Revisited

Þráinn Eggertsson varð sjötugur á síðasta ári og er ráðstefnan haldin að því tilefni. Þráinn lauk BA prófi í hagfræði og félagsvísindum (með láði) frá Manchester University árið 1964 og doktorsprófi í hagfræði frá Ohio State University árið 1972. Hann hóf störf við Háskóla Íslands árið 1973 sem lektor, varð dósent árið 1978 og gegndi prófessorsstöðu frá árinu 1980. Hann hefur verið gestaprófessor við fjölda erlendra háskóla, sem dæmi má nefna New York University, University of North Carolina, Washington University, Stanford University og Max Planck Institute í Þýskalandi. Þráinn hefur gefið út fjölda bóka og fræðigreina og var bók hans Economic Behavior og Institutions þýdd á sex tungumál. Þráinn Eggertsson var sæmdur riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín í þágu vísinda og kennslu árið 2006.

Heiðursgestur ráðstefnunnar verður dr. Douglass North, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði árið 1993 og prófessor við Washington University in Saint Louis. Hann er einn af stofnendum og fyrrverandi forseti International Society for New Institutional Economics. 

Aðrir gestir eru:

Dr. Lee Alston, prófessor við University of Colarado, Boulder. Fyrrum forseti International Society for New Institutional Economics.

Dr. John N. Drobak, prófessor við Washington University in Saint Louis og einn af stofnendum International Society for New Institutional Economics. 

Dr. James Robinson, prófessor við Harvard University og gestaprófessor við Weatherhead Center for International Affairs. 

Dr. Shanker Satyanath, dósent við New York University.

Dr. Sonja Opper, prófessor við Lund University.

Dr. Carl Hampus Lyttkens, prófessor við Lund University.

Dr. Stefan Voigt, prófessor við Hamburg University og gestaprófessor við International Centre for Economic Research (ICER) in Torino.

Fundarstjóri verður dr. Ágúst Einarsson, prófessor við Háskólann á Bifröst. 

Nánari dagskrá auglýst síðar. 

deila á facebook