Ráðstefna FUM um menntarannsóknir

Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. febrúar 2010 - 9:00 to 15:00
Félag um menntarannsóknir, FUM, heldur sína fjórðu ráðstefnu um rannsóknir á sviði menntamála laugardaginn 27. febrúar 2010 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Þema ráðstefnunnar er menntarannsóknir og þróunarstarf á vettvangi.

Um eins dags ráðstefnu er að ræða. Dagskráin hefst að morgni með fyrirlestrum fyrir alla ráðstefnugesti en því næst verður boðið upp á samhliða málstofur með nokkrum erindum í hverri.

Aðalfyrirlesari verður Dr. Megan Crawford frá Kennaramenntunarstofnun Lundúnaháskóla (Institute of Education, University of London). Á þessu ári hlaut Crawford verðlaun fyrir samstarf sitt við starfsmenn grunnskóla og framlag við að mynda brú milli fræða og starfenda.

deila á facebook