
Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði. Sýningarnar fara fram í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla Íslands og hefjast kl. 19:30.
Næsta þriðjudag þann 16.febrúar sýnir Öskra - Punishment park
Mynd eftir Peter Watkins (1971). Í lok sjöunda áratugarins var settur upp nýr dómstóll í Bandaríkjunum sem taka átti á andófsfólki. Fólk gat valið venjulega fangelsisvist eða freistað þess að komast í gegnum Punishment Park sem m.a. var liður í þjálfun lögreglunnar. Fylgst er með réttarhöldum og liðsmönnum þjóðvarnarliðs, lögreglu og sakborningum í gegnum ferli þessa dómstóls. Beinskeytt og pólitísk var myndin, sem beint er að „hinum þögla meirihluta“ harðlega gagnrýnd af fjölmiðlum og stofnunum yfirvaldsins og reynt var að hamla dreifingu hennar á sínum tíma.
Every other Tuesday Öskra!- The Movement of Revolutionary Students will show radical films about people´s resistance against the forces responsible for violence, domination of human society, destruction of the planet, wars, oppression and inequality. The shows are in the University of Iceland in the building Oddi, room 101 and starts at 19:30
Tuesday th 16th of february : Punishment Park (1971) by Peter Watkins
