Prof. Carl Baudenbacher: State aid to banks in financial crisis

Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. mars 2010 - 12:15 to 13:30

Málstofa Lagastofnunar Háskóla Íslands - Fimmtudaginn 4. mars kl. 12.15 í fundarsal Þjóðminjasafnsins

Prof. Carl Baudenbacher, forseti EFTA-dómstólsins flytur erindið: State aid to banks in the financial crisis

Í kjölfar alvaralegustu fjármálakreppu í sögu Evrópu, hafa flest Evrópusambandsríki kynnt fjölmargar aðgerðir, sem miða að því að styrkja fjármálakerfi og koma í veg fyrir að kreppan hafi frekari áhrif á efnahag einstakra þjóða. Flestar tillögur ganga út á að taka upp ríkisábyrgðir, veita ríkislán, yfirtaka eignir og ríkisvæða fyrirtæki og stofnanir. Í þessu felst ákveðin mótsögn því Evrópusambandsríkjum ber að fara að reglum um ríkisstyrki, sem banna eða hamla mjög möguleika á slíkum styrkjum til banka- og fjármálastofnana.

Hvernig tekur evrópsk löggjöf á því þegar ríkisstyrkir eru veittir og verið er að bregðast við áföllum vegna efnahagsvanda ríkja í kjölfar kreppu? Carl Baudenbacher gerir grein fyrir því hvernig tekist hefur verið á við veikleika alþjóðlegra fjármálamarkaða með mismunandi löggjöf og hvert hlutverk EFTA-dómstólsins er í því sambandi.

Fundastjóri: Elvira Mendéz-Pinedo, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands

Allir velkomnir

deila á facebook