Orð af orði. Málþing um orð og orðsifjar

Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. nóvember 2009 - 10:00 to 16:00

Laugardaginn 7. nóvember kl. 10:00–16:00 stendur tímaritið Orð og tunga og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fyrir málþingi í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar. Tímaritið heldur árlega málþing um tiltekið efni á sviði orðfræði og orðabókafræði og erindi framsögumanna verða síðan uppistaða greina í þemahluta næsta heftis. Málþingið nú er hið sjöunda af þessu tagi og hefur fengið yfirskriftina Orð af orði.

Að þessu sinni er málþingið helgað minningu Ásgeirs Blöndals Magnússonar, höfundar Íslenskrar orðsifjabókar, en í ár eru liðin hundrað ár frá fæðingu hans. Ásgeir var starfsmaður Orðabókar Háskólans um áratugaskeið og forstöðumaður hennar 1978-79. Haldin verða sjö framsöguerindi um efni sem tengjast orðum og orðsifjum. Tveimur erlendum fyrirlesurum hefur verið boðið að halda fyrirlestra á þinginu, þeim Arne Torp, prófessor við Háskólann í Osló, og Bente Holmberg, lektor og forstöðumanni Norrænu rannsóknarstofnunarinnar við Kaupmannahafnarháskóla. Aðrir fyrirlesarar verða Guðrún Kvaran, Guðrún Þórhallsdóttir, Gunnlaugur Ingólfsson, Haraldur Bernharðsson, Jón Axel Harðarson, Margrét Jónsdóttir og Mörður Árnason.

Letterstedski sjóðurinn og Forlagið styrkja málþingið.

Nánari upplýsingar um þingið ásamt dagskrá og útdráttum úr erindum má nálgast á heimasíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: www.arnastofnun.is.

deila á facebook