
OPINN FUNDUR Lagastofnunar og Orators félags laganema við Háskóla Íslands
Mánudaginn 20. september kl. 12:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands
Dómur Hæstaréttar í máli um vexti af gengistryggðum lánum
Óvissa hefur verið um vaxtakjör, frá því Hæstiréttur kvað um dóma sína um ólögmæti gengisbindingar bílalána. Nú hefur verið skorið úr þeirri réttaróvissu.
Hvaða þýðingu hefur dómurinn og hvert er fordæmisgildi hans varðandi aðra lánasamninga? Að hvaða marki getur löggjafinn látið sig varða réttarágreining um gengistryggð lán?
Um þessi og fleiri álitamál verður fjallað á opnum fundi Lagastofnunar og Orators félags laganema við Háskóla Íslands.
Framsögumenn:
Eyvindur G. Gunnarsson lektor við Lagadeild Háskóla Íslands
Benedikt Bogason dósent við Lagadeild Háskóla Íslands
Fundarstjóri:
Róbert R. Spanó prófessor og deildarforseti Lagadeildar Háskóla Íslands
Allir velkomnir
