
Miðvikudagskvöldið 24. febrúar boða Félag um lýðheilsu ásamt Félagi lýðheilsufræðinga til opins fundar í Iðnó um áhrif fjárhagsvanda á lýðheilsu – Hvaða áhrif hefur fjárhagsvandinn á lýðheilsu?
Fundurinn hefst kl 20:00.
Málefni fundarins getur haft mikil áhrif á okkar samfélag til langs tíma litið og ætti því að standa okkur öllum nærri.
Allir eru hjartanlega velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
Dagskrá
20.00 Geðheilbrigðisleg og félagsleg áhrif efnahagslægða Haukur Sigurðsson, klínískur sálfræðingur
20.20 Fjárhagsstaða og framtíð íslensku vísitölufjölskyldunnar Arney Einarsdóttir, stjórn hagsmunasamtaka heimilanna
20.35 Breytt staða Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafastöðvar um fjármál heimilianna
20.50 Bjartsýni í Reykjnesbæ Hjördís Árnadóttir, félagsmálastjóri Reykjanesbæjar
21.05 Hið ljúfa líf? Gildismat neyslusamfélaga og velsæld Ragna Benedikta Garðarsdóttir, DPhil í félagssálfræði við HÍ
21.25 Pallborðsumræður mælendur sitja fyrir svörum
21.50 Lokaorð Héðinn Unnsteinsson
Fundarstjóri: Héðinn Unnsteinsson, stjórn félags um lýðheilsu
