Opin fundur um orkustefnu fyrir Ísland

Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. febrúar 2010 - 0:00 to 16:00

Iðnaðarráðherra hefur skipað stýrihóp sem skal móta heildstæða orkustefnu fyrir Ísland. Hópurinn er kominn vel af stað í sinni vinnu en telur nauðsynlegt að leita eftir samráði við stjórnmálaflokka, hagsmunaaðila og almenning, áður en lengra verður haldið. Til að ná fram slíku samráði verður haldinn opinn kynningarfundur í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, þann 25. febrúar nk., kl. 14:00-16:00.

Dagskrá:

14:00-14:10 Ávarp iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur

14:10-14:30 Vilhjálmur Þorsteinsson form. stýrihóps um orkustefnu kynnir störf hópsins

14:30-15:20 Ávörp frá fulltrúum þingflokka um áherslur í orkumálum; - Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður, Framsóknarflokki, - Ólöf Nordal, alþingismaður, Sjálfstæðisflokki, - Skúli Helgason, alþingismaður, Samfylkingu, - Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, VG, - Þór Saari, alþingismaður, Hreyfingunni

15:20-16:00 Umræður og fyrirspurnir

Fundarstjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

deila á facebook