
Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi hefur nú starfað í rúmt ár. Af því tilefni verður opið hús í húsakynnum hennar í E-204 (Enni ) v/Stakkahlíð þann 12. nóvember frá kl. 14. Við sem að stofunni stöndum munum kynna á veggspjöldum nokkur þeirra rannsóknar- og þróunarverkefna sem við vinnum að um þessar mundir og spjalla við gesti.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir!
Heiti og höfundar veggspjalda
Árdís Hrönn Jónsdóttir. “Bók í hönd og þér halda engin bönd.”
Þróunarverkefni í leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ. Verkefnið miðar að því að efla mál- og læsisþroska leikskólabarna með því að lesa fyrir þau.
Hrafnhildur Ragnarsdóttir. Mál í notkun: Samanburður á orðaforða í rit- og talmálstextum barna, unglinga og fullorðinna.
Niðurstöður úr einum lið (þ.e. orðaforða) í umfangsmikilli rannsókn á þróun máls og málnotkunar við textagerð í fjórum aldursflokkum (11, 14, 17 ára og fullorðnir).
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Steinunn Gestsdóttir og Freyja Birgisdóttir: Þroski leik- og grunnskólabarna: Sjálfstjórn, málþroski og læsi 4ra - 8 ára barna.
Lýsing og fyrstu niðurstöður úr þriggja ára rannsóknarverkefni sem hófst haustið 2008 og tengist sem stendur 13 leikskólum og fimm grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Jóhanna Einarsdóttir. Hvað er stam?
Sagt frá niðurstöðum rannsókna um greiningu og mat á stami leikskólabarna.
Jóhanna Einarsdóttir. Hljóm og hvað svo?
Niðurstöður og vangaveltur tengdar skimunarprófinu HLJÓM-2.
Rannveig A. Jóhannsdóttir. Lestrarnám og lestrarkennsla. Rannsókn á námi og kennslu í lestri og ritun fyrstu árin í grunnskóla.
Rannsóknin er liður í doktorsverkefni Rannveigar við Stokkhólmsháskóla. Markmið hennar er að rannsaka hvaða eiginleika og færniþætti í máli, lestri og ritun reynir á og börn beita í lestrarnámi sínu á fyrstu skólaárunum og hvernig þeir móta lestrarkennslu.
Rannveig Oddsdóttir. Hvað vita fjögra ára börn um ritun?
Kynning á niðurstöðum úr rannsókn á byrjendalæsi íslenskra leikskólabarna. Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni Rannveigar, Ritun og textagerð íslenskra barna á aldrinum 4-8 ára.
Steinunn Torfadóttir og Helga Sigurmundsdóttir. Á leið til læsis.
Lestrarkennsla byggð á gagnreyndum kennsluaðferðum.
A) Leið til læsis: Lesskimun í fyrsta bekk.
B) Snemmtæk íhlutun - einstaklingsmiðuð lestrarkennsla.
C) Þróun lestrarfærni frá fæðingu til fullorðinsára.
