Nýsköpunarmessa HÍ - Afhending Hagnýtingarverðlauna HÍ
|
18/11/2011 - 16:00 18/11/2011 - 17:30 |
Háskólatorg
á torginu |
Nýsköpunarmessa Háskóla Íslands fer nú fram í þriðja sinn, á aldarafmæli Háskóla Íslands. Við sama tækifæri eru hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands veitt. Nýsköpunarmessunni er m.a. ætlað að virkja nemendur Háskólans til nýsköpunar og að veita næstu kynslóð frumkvöðla innan skólans innblástur og hvatningu til að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Markmiðið með Nýsköpunarmessunni er jafnframt að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið, senda jákvæð og uppbyggileg skilaboð til Íslendinga og gefa þjóðinni tilefni til að horfa björtum augum fram á veginn. Nýsköpunarmessan er hluti af alþjóðlegri athafnaviku á Íslandi sem Innovit stendur fyrir, en athafnavikan er nú einnig haldin í þriðja sinn.
Í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands hefur einnig verið sett upp veggspjaldasýning með vörðum úr sögu nýsköpunar og hagnýtingu rannsókna Háskóla Íslands. Fulltrúar eftirtalinna þekkingarfyrirtækja verða á staðnum og kynna starfsemi sína sem byggir á fjölbreyttum rannsóknum.
Hagnýtingarverðlaun HÍ
Hagnýtingarverðlaun HÍ eru veitt á Nýsköpunarmessu. Hagnýtingarverðlaunin eru veitt á grundvelli samkeppni sem hefur það að markmiði að laða fram hagnýtanlegar hugmyndir nemenda og kennara Háskóla Íslands. Keppnin hefur árlega laðað fram fjölmargar hugmyndir sem bera vott um grósku og nýsköpun innan háskólasamfélagsins og hjá fyrirtækjum tengdum HÍ. Hagnýtingarverðlaunin hafa verið veitt síðan 1998. Afar fjölbreyttar hugmyndir hafa hlotið verðlaun og ýmsar þeirra hafa orðið grundvöllur að stofnun sprotafyrirtækja.
Vefsíða hagnýtingarverðlaunanna
Nýsköpunarmessan er öllum opin og eru stúdentar sérstaklega hvattir til að mæta.

