Hvenær hefst þessi viðburður:
24. ágúst 2010 - 13:00

Áætlað er að nýnemakynning Lyfjafræðideildar verði haldin í Haga, Hofsvallagötu 53, þriðjudaginn 24. ágúst og hefjist kl. 13:00. Á kynningunni taka fulltrúar deildarinnar og fulltrúar Tinktúru, félags lyfjafræðinema, á móti nýnemum og kynna fyrir þeim deildina og uppbyggingu námsins, félagslíf og annað sem gott er að hafa í huga við upphaf háskólanáms. Einnig verður boðið upp á skoðunarferð um Haga, hús Lyfjafræðideildar.
Nynemum verður sent bréf með frekari upplýsingum í byrjun ágúst.
