Skip to main content

Nýnemadagar

Nýnemadagar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. september 2019 10:00 til 14:00
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Öll velkomin

Dagskrá nýnemadaga miðvikudaginn 4. september. 

  • Tónlistarmaðurinn og læknaneminn Skauti treður upp á Háskólatorgi kl. 12. Skauti gaf út sína fyrstu plötu Sáluhjálp í sumar og hans þekktasta lag heitir Ekki heim.
  • Upplýsingaborð fyrir nýnema á Háskólatorgi opið frá kl. 10-14

Í tengslum við Nýnemadaga er efnt til spurningarleiks á Uglunni en hægt er að taka þátt í honum fram til kl. 13 föstudaginn 6. september og dregið úr réttum svörum kl. 14 þann dag. Glæsilegir vinningar í boði: 

  • Tvöþúsundkróna gjafabréf í Stúdentakjallarann (tveir vinningar í boði FS).
  • 100 eininga prentkvóta (þrír vinningar í boði UTS).
  • Fjölnota bolli í boði verkefnastjóra sjálfbærni- og umhverfismála.
  • Áhugakönnun eða námskeið að eigin vali að verðmæti 6.000-8.000 kr. í boði Náms- og starfsráðgjafar.
  • Óvæntur vinningur úr Kaupfélagi stúdenta (tveir vinningar í boði FS).
  • Margnota bókapoki í boði Landsbókasafns Íslands.
  • Grænt kaffikort og fjölnota drykkjarmál frá Hámu og Kaffistofum stúdenta (fjórir vinningar í boði FS).
  • Háskólapeysur (þrjár peysur í boði Markaðs- og samskiptasviðs).

Bendum nýnemum á Nýnemavefinn sem er stútfullur af ítarlegum upplýsingum um háskólasamfélagið, fyrstu skrefin í HÍ og þjónustu, einnig leiðbeiningar fyrir nýnema, fróðleikur og margt fleira.

Myndband frá nýnemadögum 2018. 

Samfélagsmiðlar

Endilega fylgist með Háskóla Íslands á Instagram.

Einnig má fylgjast með Háskólanum á FacebookTwitter og YouTube.

Tónlistarmaðurinn og læknaneminn Skauti treður upp á Háskólatorgi kl. 12.

Nýnemadagar