Skip to main content

Nýnemadagar

Nýnemadagar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. september 2022 10:00 til 9. september 2022 14:00
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Öll velkomin

Háskóli Íslands býður nýnema velkomna með sérstökum nýnemadögum 5. - 9. september 2022.

Upplýsingaborð fyrir nýnema verður opið í nýnemavikunni frá kl. 10 - 14 á Háskólatorgi.  Fulltrúar frá Stúdentaráði standa fyrir svörum á upplýsingaborðinu. Þar má fá svör við hinum ýmsu spurningum er varða námið, skólann, húsnæði, félagslíf, þjónustu og margt fleira.

Liður í nýnemadögum er kynning á þjónustueiningum Háskólans og þá eru helstu þjónustustofnanir skólans með kynningarbása þar sem nemendur geta fengið svör við fjölmörgum spurningum. Kynningarnar eru mánudaginn 5. september kl. 11:30 - 13:00 á Háskólatorgi.  

Nemendur geta til að mynda hitt starfsfólk frá: Náms- og starfsráðgjöfAlþjóðasviðiNemendaskráTungumálamiðstöðLandsbókasafni og Smáuglunni – appi Háskóla Íslands
Á staðnum eru líka fulltrúar frá: StúdentaráðiSjálfbærni- og umhverfismálumHáskólakórnum og Félagsstofnun stúdenta sem rekur Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann og fleira. Þar má einnig ná tali af Jafnréttisfulltrúum og tengdum aðilum.  

Grænn nýnemadagur verður haldinn þriðjudaginn 6. september. Þá verða grænar hliðar Háskólans kynntar og hvernig hægt er að lifa sem umhverfisvænstum lífsstíl innan veggja skólans. Grænfáninn verður dreginn að húni við hátíðlega athöfn og tré gróðursett á Háskólasvæðinu sem skref í átt að enn grænni háskóla. Háskóli Íslands hefur flaggað Grænfánanum frá árinu 2020 og með honum leggur Landvernd áherslu á að auka umhverfismennt, menntun til sjálfbærni og að styrkja umhverfisstefnur skóla.  

Rafhlaupahjólaleigan Hopp verður með sérstakt tilboð fyrir nemendur Háskóla Íslands á Grænum nýnemadegi og verður frítt að leggja Hopp hjólum á ákveðnu svæði við Háskólatorg. Félagsstofnun Stúdenta tekur þátt í deginum með ýmsu móti. Í Hámu verður til að mynda einungis boðið upp á vegan mat, bæði heitan rétt og súpu og fjölnota kaffimál verða á sérstöku tilboði. 

Háskólakórinn syngur fyrir gesti og gangandi á Háskólatorgi þriðjudaginn 6. september kl. 12.10 og kynnir starfsemi sína. Inntökuprufur í Háskólakórinn verða 6. og 7. september kl. 17.00 í Kapellunni á annarri hæð í Aðalbyggingu

Hljómsveitin Hin verður með rafskotna poppdúett tónleika á Háskólatorgi 7. september kl. 12.10 - 12.40. Hljómsveitin er nýleg og hana skipa þau Hilmar Árni Halldórsson og Hanna Sólbjört Ólafsdóttir sem bæði eru nemendur í Háskóla Íslands. 

Nýnemum og öðrum nemendum býðst að rölta með fulltrúa nemenda við Háskóla Íslands í Háskólagöngunni.  Farið verður um svæðið og litið inn í allar helstu byggingar skólans. Þú færð einnig að heyra alls kyns sögur og fróðleik um starfið í byggingunum og á háskólasvæðinu. Lagt er af stað frá upplýsingaborði fyrir nýnema á Háskólatorgi kl. 12:00 mánudaginn 5. september og kl. 12:00 þriðjudaginn 6. september.  Það er einnig hægt að skoða myndband af rölti um svæðið og fræðast um staðsetningar bygginga.  

Alþjóðasvið býður upp á örkynningu á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi erlendis 7. september kl. 12.00 - 12.30 í stofu 101 í Odda. Frjáls mæting og skráning óþörf.

Við hvetjum nýnema líka til að skoða nýnemavefinn og að horfa á þetta myndband þar sem farið er yfir allar helstu upplýsingar sem gott er að hafa á hreinu þegar þú hefur nám í Háskóla Íslands.

Það er tilvalið að óska eftir aðgangi að Facebook-síðu fyrir alla nýnema Háskólans sem er óháð námsleiðum og fræðasviðum og opin öllum sem eru að hefja nám við skólann. Á síðunni geta nýir nemendur leitað upplýsinga hver hjá öðrum og átt í óformlegum samskiptum á jafningjagrundvelli.

Endilega fylgstu með Instagram-reikningi Háskólans þar sem kynnt er ýmis þjónusta, stuðningur og félagslíf sem stendur nemendum til boða.

Spurningaleikur fyrir nýnema er í Uglunni á nýnemadögum en þar verður spurt um ýmislegt sem tengist háskólalífinu. Glæsilegir vinningar í boði, s.s. gjafabréf í Stúdentakjallarann og Bóksölu stúdenta. Háskólapeysur, HÍ húfa, kaffikort og fl. 

Árlegt nýnemamót Stúdentaráðs verður haldið á grasfletinum framan við Aðalbyggingu fimmtudaginn 8. september og hefst um hádegisbil. Þar geta allir nemar tekið þátt í fótbolta með sínu nemendafélagi og þarf hvert lið að vera skipað 7 keppendum. Þar af þarf að vera einn nýnemi og um að gera að hafa fjölbreytni kynja í liðinu. Keppt verður 2x7mín. Sigurvegarar fótboltamótsins hljóta farandbikarinn ásamt öðrum veglegum vinningum. Liðið í skemmtilegasta búningunum fær einnig glæsilega vinninga. Skráning hefst mánudaginn 5. september. Félagslífs- og menningarnefnd Stúdentaráðs mun búa til viðburð á Facebook og auglýsa vel til nemendafélaganna og nemendur því hvattir til að fylgjast vel með. 

Fræðasvið skólans eru einnig með nýnemamóttökur. Nýnemamóttökur fræðasviða er að finna í viðburðadagatali og eftir sviðum hér neðar á síðunni.

Þegar nemendur þurfa þjónustu af einhverju tagi er Þjónustuborðið Háskólatorgi oft fyrsti viðkomustaðurinn.

Þá er gott að skoða kort af Háskólasvæðinu

Félagslíf er mikilvægur þáttur í háskólanámi. Það er mikið um að vera og endilega taktu þátt.

Hér má sjá lista yfir öll nemendafélögin og önnur félög innan Háskóla Íslands.

Hér eru tenglar á helstu þjónustueiningar og félög innan Háskólans og eru nemendur eindregið hvattir til að kynna sér þau. Ekki hika við að hafa samband ef þið hafið spurningar.

Endilega fylgstu með Háskólanum á:

Fræðasvið skólans standa hvert og eitt fyrir móttöku/kynningarfundum nýnema. Hér má finna nánari upplýsingar:

Í þessu myndbandi finnurðu allar helstu upplýsingar sem gott er að hafa á hreinu þegar þú hefur nám í Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands býður nýnema velkomna með sérstökum nýnemadögum 5. - 9. september 2022.

Nýnemadagar