Hvenær hefst þessi viðburður:
5. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Nemendur af Menntavísindasviði kynna þátttöku sína í námskeiði á vegum samnorræna lista- og menningarnetsins Nordisk kulturnetværk.
Námskeiðið heitir Listir og menning (GSF 106G) og er í boði annað hvert ár. Markmiðið er að nemendur kynnist list og menningu í félagslegri vinnu, norrænni menningu, listsköpun og menningarmiðlun.
Meginhluti námskeiðsins fór fram í Ilulissat á Grænlandi dagana 21. ágúst - 3. september 2009. Þátttakendur voru nemendur og kennarar frá sjö háskólum og menntastofnunum á Norðurlöndunum.
Kynningin fer fram í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð
Allir velkomnir
