Nikolaj Gogol 200 ára

Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. nóvember 2009 - 14:00 to 16:00

Gogol 200 ára

Sannleikurinn felst í hinum óvenjulegu viðburðum hversdagsins

Laugardagur 14. nóvember kl. 14:00 Oddi stofa 101

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og rússneskan við Háskóla Íslands efna til sérstakrar dagskrár í tilefni af 200 ára afmæli rússneska sagnameistarans Nikolajs Gogols.

Áslaug Agnarsdóttir, bókasafnsfræðingur og þýðandi: Boðskapur mannsandans – þýðingar rússneskra bókmennta á Íslandi
Í þessu erindi verða viðtökur rússneskra bókmennta á Íslandi skoðaðar út frá þýðingum sem komið hafa út allt frá lokum 19. aldar og fram á þennan dag. Sérstaklega verður fjallað um þýðingar á verkum Gogols og viðtökur þeirra. Hvaða boðskap hefur Gogol að færa okkur Íslendingum á 21. öld á krepputímum?

Rebekka Þráinsdóttir, aðjunkt í rússnesku: Hvaðan ertu Gogol og hvert er erindi þitt?
Í fyrri verkum sínum leitar Gogol mjög til þjóðsagna átthaga sinna í Úkraínu en síðar tekst hann á við Pétursborg og Rússland samtímans – og þar er ekki allt sem sýnist. Rebekka mun í erindi sínu fjalla um ýmis einkenni á verkum Gogols og það hvernig úkraínsk og rússnesk áhrif endurspeglast í verkum hans.

Árni Bergmann, rithöfundur og þýðandi: Gogol og óttinn við eftirlitsmanninn – fyrr og nú
Óttinn við „eftirlitsmanninn“ hefur löngum nagað menn sem hafa talið sig luma á einhverju misjöfnu og fengið þá til fremja ýmis konar heimskupör. Árni fjallar um leikrit Gogols, Eftirlitsmanninn sem hefur nokkrum sinnum verið sett á svið hér á landi og nú síðast í haust hjá Nemendaleikhúsinu.

Sýndur verður kafli úr sjónvarpsþáttum sem gerðir voru eftir skáldsögu Gogols Dauðum sálum og voru á dagskrá Ríkissjónvarpsins árið 1987.

Allir velkomnir!

deila á facebook