Naturam expellas furca … Manneskjan í gangverki sjálfgengissamfélagsins
|
10/09/2010 - 12:30 |
Háskólatorg
Stofa 104 |
Þjóðmálastofnun og EDDA öndvegissetur standa fyrir fyrirlestraröð um frjálshyggju í tilefni útgáfu bókarinnar Eilífðarvélin. Uppgjör við nýfrjálshyggjuna. Fyrirlestrarnir verða haldnir á föstudögum á milli 12.30 og 13.30 í stofu 104 á Háskólatorgi. Fyrsti fyrirlesturinn verður þann 10. september í stofu 104 á Háskólatorgi.
Í fyrirlestrinum fjallar Kolbeinn Stefánsson, ritstjóri Eilífðarvélarinnar, um samfélagssýn frjálshyggjunnar og þær hugmyndir um einstaklinginn sem hún hvílir á. Megin einkenni frjálshyggjunnar er ofurtrú á markaðinn. Þessi trú byggir á tilteknum hugmyndum um mannlegt eðli og atferli sem eiga sér takmarkaðar stoði í raunveruleikanum og fyrir vikið gengur samfélagssýn frjálshyggjunar ekki upp. Að auki eru ýmsar ambögur á virkni markaðarins sem að vekja efasemdir um kosti óheftrar markaðshyggju, jafnvel þó að hún hvíldi á réttum atferlisforsendum.
Kolbeinn Stefánsson er verkefnisstjóri við Eddu öndvegissetur og aðjúnkt við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Hann lauk MSc. prófi í félagsfræði frá Oxford Háskóla árið 2004 og er að leggja lokahönd á doktorsritgerð í félagsfræði við sama háskóla. Kolbeinn stundar rannsóknir á sviði vinnumarkaðs- og velferðarmála með aðal áherslu á hugmyndafræðilegar forsendur ólíkra velferðarkerfa, viðhorf til velferðarmála og samspil vinnu og heimili.
Ítarlegri upplýsingar um erindin má finna á vefsetri Eilífðarvélarinnar: http://www.ts.hi.is/eilifdarvelinv

