Myndir í tíma - Images in time

Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. nóvember 2009 - 9:00 to 28. nóvember 2009 - 16:00

© Þorvaldur Ágústsson, Þjóðminjasafn ÍslandsDagana 27. og 28. nóvember verður blásið til alþjóðlegrar ráðstefnu um ljósmyndir með það að markmiði að efla þverfaglega umræðu meðal fræðimanna um faglega þekkingu og aðferðir við rannsóknir á ljósmyndum sem heimildum um fortíð og nútíð.

Rannsakendur á sviði ljósmynda, tísku, kvikmynda, menningar- og sjónfræða, listfræði og annarra greina sem tengjast skapandi iðnaði munu, fjalla um greiningu og notkun ljósmynda sem heimilda. Skoðuð verða fagurfræðileg og siðferðileg álitamál, ferli ljósmynda í tíma, ljósmyndir sem gildishlaðnar hugmyndafræðilegar smíðir og gildi mynda fyrir endurupplifun og skilning fólks á veruleikanum í fortíð og nútíð.

Ráðstefnan er skipulögð af Æsu Sigurjónsdóttur, lektor í listfræði við Háskóla Íslands og Michael Langkjær, lektor í sagnfræði við Saxo Institut Háskólann í Kaupmannahöfn, í samvinnu við CBS Kaupmannahöfn. Ráðstefnan er haldin á Þjóðminjasafni Íslands.

Ljósmynd: © Þorvaldur Ágústsson, Þjóðminjasafn Íslands

Nánari upplýsingar á vef ráðstefnunnar.

deila á facebook