Skip to main content

Móttaka nýnema á Hugvísindasviði

Móttaka nýnema á Hugvísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. ágúst 2017 13:00
Hvar 

Háskólatorg - stofa 105

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nýnemum við Hugvísindasvið er boðið á kynningarfund föstudaginn 25. ágúst kl. 13:00-15:00. Að loknum kynningarfundi í stofu 105 á Háskólatorgi verða kynningarfundir í námsgreinum kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám í viðkomandi greinum.

Dagskrá fundarins:

  • Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
  • Kynning á Hugvísindasviði. Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs.
  • Stutt kynning á deildum.
    Oddný G. Sverrisdóttir, forseti Mála- og menningardeildar.
    Arnfríður Guðmundsdóttir, forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar.
    Gunnþórunn Guðmundsdóttir, forseti Íslensku- og menningardeildar.
    Svavar Hrafn Svavarsson, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar.
  • Kynning á Uglu. Haukur Jóhann Hálfdánarson kerfisfræðingur.
  • Kynning á félagslífi. Ingvar Þór Björnsson, formaður sviðsráðs Hugvísindasviðs og í stjórn Stúdentaráðs.

Kennsla hefst mánudaginn 28. ágúst. Sama dag hefjast nýnemadagar Háskóla Íslands en þar verður boðið upp á gönguferðir um háskólasvæðið, kynningar á þjónustu og skemmtidagskrá. 

Á nýnemavef Háskóla Íslands, hi.is/nynemar, vef Stúdentaráðs, student.is, og á vef Hugvísindasviðs, hug.hi.is, eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Ef þið hafið einhverjar spurningar um námið hvet ég ykkur til að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.

Kynningarfundir í námsgreinum kl. 14:00

Mála- og menningardeild:

  • Spænska - Veröld stofa 007
  • Ítalska - Veröld stofa 227
  • Kínversk fræði - Veröld stofa 108
  • Gríska og latína - Veröld stofa 207
  • Frönsk fræði - Veröld stofa 103
  • Japanskt mál og menning - Veröld stofa 008
  • Enska - Háskólatorg stofa 104
  • Þýska - Veröld stofa 107
  • Danska - Veröld stofa 228
  • Sænska - Veröld stofa 222
  • Rússneska - Veröld stofa 104

Guðfræði- og trúarbragðafræðideild:

  • Guðfræði - Aðalbygging stofa 229

Íslensku- og menningardeild:

  • Íslenska - Árnagarður stofa 201
  • Almenn málvísindi - Aðalbygging stofa 051
  • Táknmálsfræði - Árnagarður stofa 310
  • Almenn bókmenntafræði - Aðalbygging stofa 207
  • Kvikmyndafræði - Aðalbygging stofa 052

Sagnfræði- og heimspekideild:

  • Fornleifafræði - Aðalbygging stofa 050
  • Sagnfræði - Árnagarður stofa 301