
Félag umhverfisfræðinga á Íslandi efnir til fundar um möguleika Íslands og aðgerðir í loftslagsmálum.
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, dósent við Háskóla Íslands mun fjalla um möguleika Íslands til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda og Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri stefnumótunar og alþjóðamála í umhverfisráðuneytinu mun ræða um vinnu að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og þátttöku Íslands í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn nú í desember.
Eftir fyrirlestra þeirra verður opnað fyrir fyrirspurnir og umræður.
Nánar:
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands stýrði vinnu sérfræðinganefndar umhverfisráðuneytisins um möguleika til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, en skýrsla nefndarinnar kom út í júní á þessu ári. Brynhildur mun í erindi sínu fjalla um helstu niðurstöður nefndarinnar og aðferðafræðina sem beitt var.
Hugi Ólafsson er skrifstofustjóri á sviði stefnumótunar og alþjóðamála í umhverfisráðuneytinu. Hann er formaður verkefnisstjórnar ráðuneytisins um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og situr í samninganefnd Íslands vegna loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC). Hugi mun fjalla um vinnu að aðgerðaráætluninni og þátttöku Íslands í samningaviðræðum fyrir loftslagsráðstefnu Sþ í Kaupmannahöfn nú í desember
Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi
Allir velkomnir
Félag Umhverfisfræðinga á Íslandi
