
Möguleikar og aðgerðir í loftslagsmálum á Íslandi
Föstudag 27. nóvember kl. 14:15-16:15, Lögbergi, Háskóla Íslands, stofu 101
Möguleikar Íslands til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Vinna að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og þátttaka Íslands í COP-15
Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri stefnumótunar og alþjóðamála, umhverfisráðuneyti
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands stýrði vinnu sérfræðinganefndar umhverfisráðuneytisins um möguleika til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, en skýrsla nefndarinnar kom út í júní á þessu ári. Brynhildur mun í erindi sínu fjalla um helstu niðurstöður nefndarinnar og aðferðafræðina sem beitt var.
Hugi Ólafsson er skrifstofustjóri á sviði stefnumótunar og alþjóðamála í umhverfisráðuneytinu. Hann er formaður verkefnisstjórnar ráðuneytisins um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og situr í samninganefnd Íslands vegna loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC). Hugi mun fjalla um vinnu að aðgerðaráætluninni og þátttöku Íslands í samningaviðræðum fyrir loftslagsráðstefnu Sþ í Kaupmannahöfn nú í desember
Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi
Allir velkomnir
Félag umhverfisfræðinga á Íslandi
