Minn styrkur. Samstarfsverkefni þroskaþjálfabrautar og Umsjónarfélags einhverfra.

Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. febrúar 2010 - 12:00 to 15:30

Á síðastliðnu hausti leituðu foreldrar í Umsjónarfélagi einhverfra samstarfs við kennara og nemendur á þroskaþjálfabraut um hönnun og uppbyggingu sumarnámskeiðs fyrir unglinga sem greinst hafa á einhverfurófi. Fyrirhugað er að hrinda námskeiðinu í framkvæmd á komandi sumri. Nemendur hafa unnið að þessu viðfangsefni í lokaverkefni sínu ásamt því að vinna vísi að rafrænu þekkingarsafni sem hugsað er til stuðnings væntanlegum leiðbeinendum námskeiðsins.

Á föstudaginn 5. febrúar kl. 12.00-13.00 munu fulltrúar Umsjónarfélags einhverfra og nemendur þroskaþjálfabrautar kynna verkefnið og stöðu þess og svara fyrirspurnum. Í kjölfarið verður heimildamyndin Sólskinsdrengurinn sýnd.

Nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands eru hvattir til að koma og kynna sér áhugavert framtak í málefnum fólks með einhverfu.

deila á facebook