Miðvikudagsfyrirlestur: High/Scope uppeldisstefnan

Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. nóvember 2009 - 16:00 to 17:00

Íris Dögg Jóhannesdóttir og Herdís Stephensen frá leikskólanum Mánagarði hjá Félagsstofnun Stúdenta kynna High/Scope uppeldisstefnuna.
Hjá leikskólum Félagsstofnunar Stúdenta er unnið frumkvöðlastarf þar sem tekin var sú  ákvörðun haustið 2008 að senda tvo kennara til 7 vikna náms í High/Scope fræðum í Michigan, Bandaríkjunum. Þær hafa nú lokið réttindanáminu og hafist handa við að innleiða stefnuna á leikskóla FS.
Í erindinu munu þær fjalla um dagskipulagið í High/Scope umhverfi þar sem virkt nám er haft að leiðarljósi en hornsteinn High/Scope stefnunnar er trúin á að virkt nám sé undirstaðan fyrir manneskjuna til að ná fullum þroska og getu og að virkt nám sé árangursríkast í umhverfi þar sem börnin fá verkefni sem hæfa aldri þeirra og þroska.

Herdís Stephensen á að baki langan leikskólaferil. Hún hefur starfað á Mánagarði frá árinu 2000. Hún lauk leikskólaliðanámi 2007 og fékk réttindi sem High/Scope kennari í júní 2009. Herdís er deildarstjóri á elstu deildinni á Mánagarði.
Íris Dögg Jóhannesdóttir hefur starfað á Mánagarði frá árinu 2001. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari  frá Kennaraháskólanum árið 2007 og fékk réttindi sem High/Scope kennari í júní 2009. Íris er aðstoðaraleikskólastjóri á Mánagarði.

Fyrirlesturinn fer fram í Bratta, fyrirlestrarsal Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð milli kl. 16 og 17.

Hann verður tekinn upp og birtur á http://sjonvarp.khi.is

deila á facebook