MerkOr: merkingarnet fyrir íslenska máltækni
|
31/01/2012 - 12:00 |
Árnagarður
Stofa 423 |
Næsti fyrirlestur Máltækniseturs verður haldinn kl. 12-13 þriðjudaginn 31. janúar í stofu 423 í Árnagarði. Fyrirlesari er Anna Björk Nikulásdóttir doktorsnemi og nefnist erindi hennar “MerkOr: merkingarnet fyrir íslenska máltækni”.
MerkOr er nýstárlegt íslenskt orðasafn sem byggist á merkingarvenslum milli orða og flokkun þeirra í merkingarsvið. Allt innihald MerkOr varð til með sjálfvirkum aðferðum sem eiga að nýtast til þess að búa til fleiri orðasöfn af þessu tagi, jafnt fyrir íslensku sem önnur tungumál.
Markmiðið er að MerkOr nýtist fyrst og fremst í íslenskri máltækni, í hugbúnaðargerð þar sem merkingarupplýsinga um íslensk orð er þörf. Jafnframt er vel hugsanlegt að MerkOr nýtist á annan hátt, til að mynda í málfræðirannsóknum og íslenskunámi.
MerkOr hefur verið í þróun undanfarin þrjú ár, en verkefnið er hluti af Öndvegisverkefni RANNÍS: "Hagnýt máltækni utan ensku - íslenska tilraunin", 2009 - 2011. Í hádegisfyrirlestri Máltækniseturs verður farið yfir þróun MerkOr og niðurstöður þessarar fyrstu útgáfu kynntar.
Nánari lýsingu á MerkOr er að finna á http://merkor.skerpa.com og þar er hægt að skoða tilraunaútgáfu safnsins.
Anna Björk Nikulásdóttir lauk MA-prófi í máltækni frá háskólanum í Heidelberg 2007 með ritgerðinni “Automatische Extrahierung von semantischen Relationen aus einem einsprachigen isländischen Wörterbuch”. Hún hefur undanfarin ár stundað doktorsnám undir leiðsögn dr. Matthew Whelpton. Anna hefur birt ýmsar greinar um rannsóknir sínar, bæði ein og í félagi við Matthew.

