Skip to main content

Menntakvika — árleg ráðstefna Menntavísindasviðs

Menntakvika — árleg ráðstefna Menntavísindasviðs - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. október 2017 9:00 til 16:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Menntakvika: Rannsóknir, nýbreytni og þróun verður haldin við Háskóla Íslands þann 6. október 2017. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum. Menntakvika verður sett við hátíðlega athöfn í skólastofu framtíðar á Menntavísindasviði á Alþjóðadegi kennara þann 5. október.

Hátt í 220 erindi í 58 málstofum, sem snerta öll fræðasvið menntavísinda, verða flutt á ráðstefnunni. Viðfangsefnin eru afar fjölbreytt og má þar nefna kynjahugleiðingar, heilsuhegðun og fæðuval, sjálfsmyndarsköpun, umræðu um Kópavogshæli, fóstur með Downs-heilkenni, menntun ungs flóttafólks, íþróttaiðkun unglinga og stuðningsmenn enska boltans.

Auk þess verður boðið upp á tvær spennandi vinnustofur undir stjórn dr. Zachary Walker. Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á vinnustofurnar á vef Menntakviku þar sem sætafjöldi er takmarkaður.

Áhugasamir geta kynnt sér dagskrá ráðstefnunnar í heild sinni hér.

Takið daginn frá og fjölmennið!

Árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Menntakvika: Rannsóknir, nýbreytni og þróun verður haldin við Háskóla Íslands þann 6. október 2017.