Menning og klám í Háskóla Íslands - Opinn umræðufundur í hádeginu

Hvenær hefst þessi viðburður: 
24. mars 2010 - 12:00 to 13:30

Klámvæðing og klámmenning fer vaxandi í íslensku samfélagi. Klámvæðing merkir að sífellt er daðrað við táknmyndir og tilvísanir kláms í dægurefni þannig að mörkum hins „eðlilega“ og leyfilega er stöðugt ögrað og þau víkkuð út. Andstaða gegn klámi og klámvæðingu byggist ekki á andstöðu við nekt og kynlíf heldur þá mynd af kynverund kvenna og karla sem þar er dregin upp og gjarnan byggist á ofbeldi, hlutgervingu og valdatengslum. Þessi þróun teygir anga sína inn í skólakerfið, félagslíf nemenda og tómstundaviðburði. Háskólasamfélagið er hér ekki undanskilið.

Í Háskóla Íslands á sér stað gagnrýnin og lifandi umræða um þessi mál sem skólinn vill veita út í samfélagið.

Miðvikudaginn 24. mars, kl. 12 standa jafnréttisnefndir HÍ, Stúdentaráðs, Félagsvísindasviðs og Menntavísindasviðs, ásamt jafnréttisfulltrúa HÍ, fyrir opnum umræðufundi um menningu og klámvæðingu í Háskóla Íslands.

Fundurinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Hann fer að mestu fram á íslensku, annað erindanna er flutt á ensku.

Dagskrá:
Ólafur Páll Jónsson, dósent í heimspeki á Menntavísindasviði HÍ „Lærdómur og klám“
Thomas Brorsen Smidt, MA-nemi í kynjafræði við HÍ „For the Picture Tells Me So: Men and Pornography in the Public Sphere“
Fundarstjóri: Brynhildur Flóvenz, dósent í Lagadeild og formaður jafnréttisnefndar HÍ Á eftir erindum verða almennar umræður.

Aðgangur ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Jafnréttisnefndir HÍ, Stúdentaráðs, Félagsvísindasviðs og Menntavísindasviðs og jafnréttisfulltrúi HÍ.

deila á facebook