Meistaravörn frá Raunvísindadeild (eðlisfræði) - Friðrik Freyr Gautason

Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. september 2010 - 15:00

Meistaravörn frá Raunvísindadeild (eðlisfræði)
Skammtaáhrif og rafhlaðin svarthol
Fimmtudaginn 16. september klukkan 15 í stofu 131 í Öskju Íslands
Friðrik Freyr Gautason


Verkefnið snýr að ákveðnum eiginleikum svarthola sem bera rafhleðslu. Tímaóháð rafhlaðin svarthol í sígildri þyngdarfræði búa yfir tveimur sjóndeildum ásamt tímalægu sérgildi. Athugandi sem lendir inn í slíku svartholi getur sloppið frá sérgildinu án þess að hljóta skaða af en kemur út í öðrum "alheimi" en hann hóf ferð sína í. Með ítarlegum tölulegum útreikningum í tvívíðu þyngdarfræðilíkani er kannað hvernig innri gerð rafhlaðins svarthols breytist þegar tekið er tillit til parmyndunar rafhlaðinna agna. Niðurstöðurnar renna stoðum undir þá tilgátu að innri sjóndeildin hverfi og athugendur eigi enga leið út úr rafhlöðnu svartholi frekar en svartholi án hleðslu.
Leiðbeinandi: Lárus Thorlacius, prófessor við raunvísindadeild HÍ og forstöðumaður Norrænu rannsóknarstofnuninnar í kennilegri eðlisfræði í Stokkhólmi. Í meistaranefnd situr, auk leiðbeinanda, Þórður Jónsson, prófessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands.


Prófdómari: Gunnlaugur Björnsson, vísindamaður á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands

deila á facebook